Óli prik

Heimur Hörpunar :)

25.01.2007 18:23:14 / harpy

24 í dag - læt inn annálinn minn hér líka :)

Annáll 2006

 Janúar

Þrjú boð sem standa upp úr í janúar : Óskar bróðir var 30 ára og var afmælisboð í tilefni þess, Helga E varð 25 ára farið í partý til hennar og svo Útskriftarpartýið hjá Kristni. Í þessum mánuði var bónadagurinn og skipulögðum við Silja kvöld fyrir Þór og Sigga sem heppnaðist ótrúlega vel- það var líka upphafið af öllum okkar frábæru Lost kvöldum. Eitt barn fæddist í ættina þennan mánuð Reynar Hlynsson.

Febrúar

 Passaði Hrefnu Brynju og Bryndísi í einn sólahring- gerðum margt skemmtilegt saman. Tvö böll í þessum mánuði : Bermudaball og Papaball. Einnig voru 2 góð partý – hjá Steina og svo hjá Baldri. Þetta var mígreni mánuður – fékk 4 sinnum kast í þessum mánuði . Hin ógleymanlegi konudagur var og toppuðu Þór og Siggi Bónadaginn með því að bjóða okkur Silju í dekur og svo í limmó út aðborða í Perluna . Fór á skyndihjálpa námskeið hjá Rauðakross Íslands. Gísli bróður var líka 35 .

Mars

Í mars þá þurfti ég að sýna leikhæfileika mína ásamt táknmálsfræðibekknum mínum. Eitt verkefnið var nefnilega að sýna leikrit og sýndum við það í Háskólabíó – fyrir fullt af krökkum og nokkrum foreldrum. Pabbi minn var líka 60. Hið ógleymanlega pottapartý hjá Sigga og Silju var líka í mars. Og að lokum eignaðist ég tvíbura frændur sem fengu nöfnin : Björn Ívar og Magnús Már.

Apríl

 Um páskana fórum við Þór upp í bústað – fengum góða gesti þangað. Ég skipti um blogg og fór á þessa síðu Eitt barn fæddist í fjölskylduna þennan mánuð sem fékk nafnið : Matthías Gíslason.

 Maí

 Katrín vinkona útskrifaðist og fórum við í veislu til hennar og svo tvennir Burtfaratónleikar – Hjá Guggu og Thelmu. Lokahóf hjá táknmálsbekknum mínum. 40 afmæli hjá Sigrúnu Örnu.... (bara veislur þennan mánuð) hehe. Fjóla vinkona eignaðist litla prinsessu sem fékk nafnið : Díana Ósk.

 Júní

Þessi mánuður var MJÖG viðburðaríkur... Byrjaði að passa Önnu Margréti. Ég og Þór fluttum saman í 101 . Héldum afmælis og innflutningsboð fyrir Þór. Skruppum dagsferð til Akureyrar í barnablessun hjá Matthíasi. Afmælisboð til Ásdísar. Ég og Þór trúlofuðum okkur . Eitt lítil strákur í ættina fæddist sem fékk nafnið Mikael Helgi.

Júlí

Ættarmót í Þórs ætt á Húnavöllum. Fór í sund fyrsta skipti í kópavogi eftir að hafa búið þar í ein 8 ár. Hin fræga óvissuferð til eyja með Sigga og Silju- það var sko eitt af topp 3 á árinu . Og eitt það erfiðasta á árinu var að kveðja þau S+S en þau fluttu til Svíþjóðar í þessum mánuði.

Ágúst

 Fór til Svíþjóðar 2 x í ágúst, fyrst fór ég ein til Sigga og Silju, þvílíkt æðislegt að vera með þeim og hjá þeim. Seinna skiptið var í endann ágúst og þá fórum við Þór saman í sureprise ferð til þeirra – sem heppnaðist ÓTRÚLEGA vel . Fórum í bústaðinn 1x. Magnús Orri var 1árs og var auðvita veisla í tilefni þess. Fórum svo í 70 ára afmæli hjá frænku Þórs. 

September

 Byrjaði í Uppeldis- og menntunarfræði í HI, fór í mína fyrstu vísindaferð og var hún í Coca Cola. 60 ára afmæli hjá frænku Þórs. Fórum 1x í bústaðinn. Fór í mína fyrstu vísindaferð í CocaCola

Október

 Fór á árshátíð hjá Landsbankanum. Vanessa kom sureprise til Íslands. Silja mín kom líka til Íslands til að útskrifast. Októberfest hjá HÍ. Útskriftaveislu til Rúna. Innflutningspartý til Karítasar og Einars. Ég var 25 ára og hélt að því tilefni smá teiti á Pravda og komu um 40-50 manns.

Nóvember

Stelpupartý hjá Karítas þar sem hún átti afmæli. Einnig fórum við í 4 ára afmæli til Elías Karls- tók Magnús Orra með þar sem hann gisti hjá mér – annað skiptið á árinu. Fór á Rockstar tónleika- sem seint gleymist. Hætti að skúra hjá Símanum eftir næstum 3ár.

Desember

Fór í þrjú próf 12, 16 og 20. Lundarliðið mitt kom til landsins :) Jólin voru góð. Áramótin voru nokkuð góð Gísli bro kom með fjölskylduna og vorum við 12 saman á áramótunum – öll fjölskyldan og voru þetta fyrstu áramótin sem ég og Þór vorum saman. Vorum frekar róleg en skruppum þó aðeins í partý til Steina.

Takk fyrir árið :) Ég hef mikla trú á að árið 2007 verði ótrúlega gott :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 17:22:42 / harpy

Jahérna hér

Greinilegt að fólk er enn að kíkja á þessa síðu ;), enda eru margir enþá með link á þessa en það er spurning hvort þið vitið af nýju síðunni minni :)......

En hún er www.harpan.bloggar.is - skrifa reglulega þar inn, en það er spurning hvort maður setji eitthvað sniðugt á þessa líka....

En annars bara Gleðileg jól og allt það og takk fyrir það gamla :)

knús knús

Harpan


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 23:42:21 / harpy

Ein forvitin

Hverjir eru enþá að kíkja á þessa síðu mína?? kv Harpan ;9

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 14:09:02 / harpy

ole ole

ole ole ole ole


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 14:07:02 / harpy

Góðan daginn :)

komið svo mikið nýtt hér  - just tekk tekk

Harpan


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 20:21:14 / harpy

Góðan kvöldið :)

Góða kveldið :) - komið annsi langt síðan ég hef skrifað á þessa síðu, ætlaði að hafa þetta fyrir einhvvað svona sniðugt eins og ég setti inn síðast :).....

Var að velta fyrir mér hvort fólk væri en að skoða þessa síðu og vissi kannski ekki af nýju síðunni minni, veit allavega um eina sem hélt bara að ég væri alveg HÆTT að blogga en svo er ekki hin síðan er www.harpan.bloggar.is endilega kíkið þangað og kvittið :)

Hef þetta ekki lengra í bili - Harpan


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 12:43:24 / harpy

Þetta er snilld :)

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu. Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til! En, ef þú bíður of lengi, mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 01:04:16 / harpy

Bara svona smá :)

1. Aldrei í lífi mínu: myndi ég reykja

2. Þegar ég var 5 ára: lærði ég að hjóla á bleika hjólinu mínu

3. Menntaskólaárin voru: Æðisleg, kynntist svo mikið af Æðislegu fólki  
4. Ég hitti einu sinni: pass

5. Einu sinni þegar ég var á bar: humm ætli ég verði ekki að segja pass á þessa fer svo sjaldan á bari.

6. Síðastliðna nótt: Fór ég á djammið –kom reyndar heim um hálf 3-3

7. Næsta skipti sem ég fer í kirkju: Fer allavega í brúðkaup í Júlí
8. Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég:
Þórinn minn sofandi
J .
9. Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég:
Stúdentsmynd af Þórinum mínum

 10. Hvað eru margir dagar í afmælið mitt: Vó það eru ca 6 mánuðir
11. Ef ég væri karakter skrifaður af Shakespeare væri ég:
pass á þetta líka
12. Um þetta leyti á næsta ári:
Verð ég pottþétt í prófum

13. Betra nafn fyrir mig væri: Er bara nokkuð ánægð með nafnið mitt.

 14. Ég á erfitt með að skilja: Fólk sem byrjar að reykja

15. Þú veist að mér líkar vel við þig ef: já ef ég sýni áhuga og tala við þig J
16. Fyrsta manneskjan sem ég myndi þakka ef ég myndi vinna verðlaun væri:
Eftir því hvaða verðlaun þetta væru
J

17. Farðu eftir ráðum mínum: Ef þér finnst það vera rétt
18. Uppáhaldsmorgunmaturinn minn er:
Hafragrautur

19: Why won´t someone: sing for me :
20. Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup:
Ef ég myndi vilja hætta við

21. Heimurinn mætti alveg vera án: Nauðgara og morðingja
22. Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að:
borða skít
23. Bréfaklemmur eru nytsamlegri en:
mjög margt
24. Ef ég geri eitthvað vel er það:
Vel gert  
25. Og að lokum:
Alltaf gaman að fræðast meira um sjálfan sig
J

Ætla ekki að klukka neinn J en auðvita mega allir sem vilja prufa J  


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 14:18:05 / harpy

Já einmitt það já:)

Tékk this out :) http://harpan.bloggar.is

Bara prufa eitthvað nýtt :) er samt ekkert hætt með þessa síðu, ætla aðeins að purfa þetta allavega og sjá svo til :D

farin að læra

Harpan


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 20:58:48 / harpy

Lítill Matthías fæddur :)

Mig langaði bara að segja ykkur að ég eignaðist lítinn frænda í dag 0 Hann hefur verið nefdur Matthías 0 Nú bara bíð ég eftir að fá mynd af honum 0. ohh þetta er svo yndislegt. Ætli ég reyni ekki svo að heimsækja hann og auðvita alla hina í fjölskyldunni þegar ég er búin í prófum 0 eintóm gleði 0 0

Kveðja Harpa sem á nú tvo litla frændur 0 og tvær stórar frænkur 0


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 20:52:31 / harpy

Lítill Matthías fæddur :)

Mig langaði bara að segja ykkur að ég eignaðist lítinn frænda í dag :) Hann hefur verið nefdur Matthías :) Nú bara bíð ég eftir að fá mynd af honum :). ohh þetta er svo yndislegt. Ætli ég reyni ekki svo að heimsækja hann og auðvita alla hina í fjölskyldunni þegar ég er búin í prófum :) eintóm gleði :) :)

Kveðja Harpa sem á nú tvo litla frændur :) og tvær stórar frænkur ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 12:44:22 / harpy

This is so true!!!

 GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ

Vinur minn opnaði undirfataskúffu konu sinnar og tók upp gjafapakka vafinn inní silkipappír:

  "Þetta er enginn venjulegur pakki."
Hann opnaði pakkann og starði á bæði pappírinn og undirfötin sem í honum voru.
 
"Ég gaf henni þetta þegar við fórum til New York í fyrsta sinn fyrir 8 eða 9 árum síðan. Hún hefur aldrei farið í þetta. Var að spara það fram að sérstakri stund.
Eða . . . ég held hún hafi verið að spara það.." Hann færði sig nær rúminu og setti pakkanum hjá hinum fötunum sem hann ætlaði að taka með á jarðarfararstofuna, konan hans var nýlátin. Hann sneri sér að mér og sagði:
"Það á aldrei að geyma eitthvað til þess að nota það á sérstakri stund. Hver dagur er sérstök stund."
Ég held enn að þessi orð hafi breytt lífi mínu.
Núna les ég meira og þríf minna.
Ég sit í garðinum án þess að hafa áhyggjur af neinu.
Ég eyði meiri tíma með fjölskyldunni og minni tíma í vinnunni.
Ég skildi það þarna að lífið á að vera uppspretta reynslu sem maður á að njóta en ekki aðeins að þrauka í gegnum. Ég geymi ekki ekki neitt lengur, ég nota kristalsglös á hverjum degi. Ég fer í nýju fötunum mínum í búðina, ef mig langar til þess.
Ég geymi ekki uppáhalds ilmvatnið mitt fyrir sérstök tækifæri. Ég nota það hvenær sem mig langar til. Orðin "einhverntíman" og "einhvern daginn" eru að hverfa burt úr orðaforða mínum. Ef það er þess virði að sjá, hlusta eða gera, þá vil ég sjá hlusta og gera það núna. Ég veit ekki hvað eiginkona vinar míns hefði gert ef hún hefði vitað að hún yrði ekki með okkur morguninn eftir, það getur enginn vitað. Ég held að hún hefði hóað í fjölskyldu sína og nánustu vini.
Hún gæti jafnvel hafað kallað á gamla vini til að koma sátt á fornar deilur. Ég vil líka gjarnan trúa því að hún hefði farið út að borða á kínverskan veitingastað, sem var hennar uppáhald. Það eru þessir litlu hlutir sem ég myndi sjá eftir að hafa ekki gert, ef ég vissi að minn tími væri kominn.
Ég myndi sjá eftir því að hafa ekki gert þetta vegna þess að ég mun aldrei framar sjá vini mína, og bréf . . . bréf sem ég ætlaði alltaf að skrifa. . . "einhverntíman."
Ég myndi sjá eftir því og vera sorgmædd vegna þess ég sagði hvorki systkinum mínum né börnum nógu oft hversu mjög mér þætti vænt um þau.
Núna reyni ég hvorki að fresta, tefja eða geyma nokkuð sem gæti fært gleði og hlátur inní líf okkar.
Og á hverjum morgni segi ég við sjálfa mig þetta er minn sérstaki dagur.
Hver dagur, hver stund, hver mínúta er sérstök.
Ef þú færð þetta bréf þá er það vegna þess að einhverjum þykir vænt um þig og vegna þess, sennilega, að þarna úti er einhver sem þér þykir líka vænt um.
Ef þú ert of upptekin til að senda þetta til annarra og segir við sjálfa þig að þú munir "senda þetta við betra tækifæri" mundu að "Einhvern daginn" er langt í burtu . . . eða kemur kannski aldrei. . . .
Þetta er svo satt, fékk þetta frá góðri vinkounu og í staðinn fyrir að senda þetta áfram ákvað ég að setja það á bloggið mitt :) kv  Harpan


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 20:05:54 / harpy

Hæhó

Gleðileg páska allir saman :) vonandi hafið þið það sem allra best :) !! Ég er farin í bústað, fullt af krasandi fréttum þegar ég kem til baka :)

Páska kveðja Harpa :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 22:39:35 / harpy

Jájá það fer að koma langt blogg :)

Hæ elskurnar mínar :)

Ég lofa að koma með blogg á morgun eða allavega fyrir páska :) vildi reyndar miklu frekar vera að blogga núna en að læra fyrir þetta bíbbbbbbbbb "munnlega" próf :S en verð víst að halda áfram að læra þessar fréttir utan að.... Bið að heilsa í bili Harpan


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 21:04:21 / harpy

Afmæli

 

 Afmælisbörn aprílmánaðar :)



 

 1.apríl Gunnar Heiðar

 3.apríl Þorsteinn

 6.apríl  Hrefna Brynja, Nía & Elías Ingi

 8.apríl  Elísabet

 9.apríl  Jón Jökull & Telma Sveins

12.apríl Ingibjörg Ósk & Agnes Ýr

13.apríl Eddi, Finnbogi & Grétar

20.apríl Baltasar Dagur

29.apríl Sigurbjörg Líf

30.apríl Hulda Guðmunds

Muna svo að láta mig vita ef það vantar einhvern inn á ;)

kveð að sinni Harpan....


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Leitarbox

Vinir í útlöndum :)
X-vinnufélagar :)
Klukkan